Ein stjórnstöð fyrir allan reksturinn.

Sjálfvirknin undirbýr verkin. Fólk samþykkir. Smíðað fyrir hvert fyrirtæki, ofan á kerfin sem það notar þegar.

Galdrasmiðjan · StjórnstöðSýnidæmi
Núna
Þetta þarf þig núna.
Yfirferð1 bíður samþykkisEkkert fer út fyrr en þú samþykkir
Yfirsýn
Átta atriði að fylgjast með.
TekjurYfir áætlunÁskriftir og verkefni
FyrirspurnirÍ lagiÖllum svarað
Tilboð2 útiBíða svars
Stjórnstöðvar í rekstriAllar í lagiEngin frávik
Fjármál1 á gjalddagaÚtistandandi
Markaðssetning3 á dagskráNæstu tvær vikur
LeitÍ lagiMæling í byrjun mánaðar
ReksturÁ áætlunOpin verk í vinnslu
Sjáðu hana vinna

    Stjórnstöð Galdrasmiðjunnar. Atburðir, tölur og atriði eru sýnidæmi, ekki raungögn.

    Way of Life netverslun og heildsalaFerðaþjónusta frá tilboði til reikningsUmboðsskrifstofa tekjur og afstemmingPayday · Shopify · Meta · Google

    Í daglegri notkun hjá Way of Life.

    Way of Life flytur inn heilsuvörur og selur þær í vefverslun og til endursöluaðila um allt land. Teymið vinnur í eigin stjórnstöð, í útliti Way of Life, og sér þar hvað þarf ákvörðun og hvernig reksturinn stendur.

    Hver stjórnstöð fær útlit og hugtök fyrirtækisins. Engar tvær eru eins.

    • Auglýsingar, fréttabréf og greinar bíða samþykkis í einni röð og birtast eftir samþykki
    • Sala, fjármál, innkaup, lager og afhendingar á einum skjá
    • Pantanir endursöluaðila og vöruskil afgreidd með einum takka
    • Innkaupapantanir til birgja stofnaðar úr stjórnstöðinni

    Sjálfvirkni sem undirbýr. Fólk sem ákveður.

    Stjórnstöðin keyrir reglubundin verk daglega, vikulega, mánaðarlega og eftir árstíðum, auk verka sem fara af stað við tiltekna atburði. Niðurstaðan er alltaf drög til yfirferðar, aldrei sjálfvirk sending.

    Gervigreindin undirbýr. Fólk samþykkir.

    Stjórnstöðin sendir ekki, birtir ekki og ráðstafar ekki fjármunum án samþykkis. Allt sem sjálfvirknin eða Claude útbýr fer í sömu yfirferð, merkt uppruna sínum og þeim sem bað um það.

    Sendir tölvupóst eða fréttabréf án samþykkis
    Birtir auglýsingar eða færslur án samþykkis
    Stofnar reikninga eða ráðstafar fjármunum
    Undirbýr verkin og bíður samþykkis

    Aðskilin kerfi

    Hver stjórnstöð hefur eigin gagnagrunn og eigin aðgangslykla, hýst á reikningi í eigu fyrirtækisins. Þekking flyst milli verkefna, gögn aldrei.

    Núverandi kerfi halda sér

    Bókhald, vefverslun og kassakerfi eru áfram grunnskrár. Stjórnstöðin les úr þeim og skráir í þau en kemur ekki í þeirra stað.

    Svör byggð á útgefnu efni

    Þegar stjórnstöðin svarar viðskiptavinum byggir hún eingöngu á efni sem fyrirtækið hefur gefið út. Liggi svarið ekki fyrir fer fyrirspurnin til starfsmanns.

    Sýnileiki á Google og í gervigreindarleit.

    Viðskiptavinir leita í auknum mæli svara hjá ChatGPT, Claude og Perplexity, ekki aðeins á Google. Við byggjum vefi sem bæði leitarvélar og gervigreind geta lesið, og mælum reglulega hvernig fyrirtækinu er lýst.

    Um leit og gervigreind →
    Leitarmæling · nóvemberSýnidæmi
    Spurning viðskiptavinarGoogleChatGPTClaudePerplexity
    Hvar get ég pantað blómvönd með heimsendingu í Reykjavík?NefntNefntEkki nefntNefnt
    Hvaða blómabúð er opin á sunnudögum?NefntEkki nefntEkki nefntRangt lýst
    Er hægt að panta brúðarvendi á netinu?Ekki nefntEkki nefntEkki nefntEkki nefnt
    Tvær greinar í drögum í Yfirferð, ein leiðrétting á vefnum.

    Frá fyrsta fundi að stjórnstöð í daglegri notkun.

    Greining

    Farið yfir reksturinn, kerfin sem eru í notkun og hvar tími tapast.

    Kortlagning

    Skilgreint hvað stjórnstöðin á að sýna, hvaða verk hún vinnur og hver samþykkir.

    Fyrsta útgáfa

    Stjórnstöðin prófuð með raungögnum fyrirtækisins áður en hún er tekin í notkun.

    Rekstur og þróun

    Við vöktum, viðhöldum og bætum við einingum eftir því sem þarfir breytast.

    Bókaðu kynningarfund.

    Við förum yfir reksturinn með þér og metum hvar stjórnstöð, sjálfvirkni eða betri sýnileiki myndi skila mestu. Fundurinn er án skuldbindingar.

    Bóka kynningarfund
    eða skrifaðu á hallo@galdrasmidjan.is