Sjálfvirkni sem undirbýr. Fólk sem ákveður.
Verkin sem tengja kerfin saman eru unnin sjálfkrafa og skila drögum í yfirferð. Engin sjálfvirk sending, engin birting án samþykkis.
Verkin sem keyra.
Dæmi um reglubundin verk. Hver stjórnstöð fær verk sem endurspegla starfsemi fyrirtækisins.
Dæmi eftir greinum.
Netverslun
Sala gærdagsins borin saman við auglýsingar, vörur sem eru að klárast fá drög að innkaupapöntun, og pantanir endursöluaðila lesnar inn til afgreiðslu.
Ferðaþjónusta
Fyrirspurn verður að tilboði með verði sem reiknast jafnóðum, samþykkt tilboð að bókun og bókun að reikningi í drögum.
Þjónustufyrirtæki
Tekjur og útistandandi reikningar teknir saman, frávik í bankanum dregin fram og fréttabréf sett saman úr verkum vikunnar.
Hvernig við veljum hvað á að sjálfvirknivæða.
- Byrjað á leiðinlegasta verkinu sem gerist oftast, ekki því sem er tæknilega flottast.
- Engin ný kerfi að óþörfu. Oftast vantar aðeins tengingar milli þeirra sem fyrirtækið á.
- Hvert verk þarf að borga sig. Ef ferli sparar ekki sinn eigin kostnað á innan við ári er því sleppt.
- Alltaf leið til baka. Ef sjálfvirkni stöðvast heldur reksturinn áfram eins og áður.
Gervigreindin undirbýr. Fólk samþykkir.
Stjórnstöðin sendir ekki, birtir ekki og ráðstafar ekki fjármunum án samþykkis. Allt sem sjálfvirknin eða Claude útbýr fer í sömu yfirferð, merkt uppruna sínum og þeim sem bað um það.
Aðskilin kerfi
Hver stjórnstöð hefur eigin gagnagrunn og eigin aðgangslykla, hýst á reikningi í eigu fyrirtækisins. Þekking flyst milli verkefna, gögn aldrei.
Núverandi kerfi halda sér
Bókhald, vefverslun og kassakerfi eru áfram grunnskrár. Stjórnstöðin les úr þeim og skráir í þau en kemur ekki í þeirra stað.
Svör byggð á útgefnu efni
Þegar stjórnstöðin svarar viðskiptavinum byggir hún eingöngu á efni sem fyrirtækið hefur gefið út. Liggi svarið ekki fyrir fer fyrirspurnin til starfsmanns.
Bókaðu kynningarfund.
Við förum yfir reksturinn með þér og metum hvar stjórnstöð, sjálfvirkni eða betri sýnileiki myndi skila mestu. Fundurinn er án skuldbindingar.
Bóka kynningarfundhallo@galdrasmidjan.is